Lögmannsþjónusta, viðskiptaráðgjöf, skatta- og reikningsskil, á einum stað

Dominion sinnir alhliða lögmannsþjónustu, viðskiptaráðgjöf, og skatta- og reikningsskilum með það markmið að leiðarljósi að styðja fólk og fyrirtæki við að öðlast yfirsýn og taka upplýstar og markvissar ákvarðanir.

Lögmannsþjónusta okkar er bæði almenn og sérhæfð, með áherslu á viðskiptarétt í víðu samhengi, þar á meðal félagarétt, fjármálarétt, skattarétt og tryggingarétt.

Viðskiptaráðgjöf okkar er einnig bæði almenn og sérhæfð, með áherslu á rekstur fyrirtækja, stefnumótun, fjármálaráðgjöf og fjártækni.

Skatta- og reikningsskil eru grunnstoð í lífi margra einstaklinga og fyrirtækja. Við sjáum um skattskil, bókhald og gerð ársreikninga, auk þess að veita skattaráðgjöf.

Sérstaða Dominion felst í þeirri samfelldu heild sem myndast þegar lögfræðileg greining, fjármálaleg hugsun og rekstrarlegt innsæi vinna saman.

Við nálgumst hvert verkefni út frá raunverulegum þörfum viðskiptavinarins og sameinum dómgreind, gagnsæi og djúpa sérhæfingu til að leysa flókin mál á skilvirkan og mannlegan hátt. Með því að brúa bilið milli lagalegra álitaefna, fjármálalegrar ábyrgðar og rekstrarstefnu sköpum við lausnir sem styðja bæði daglegan rekstur og langtímaárangur.

Um okkur